top of page

Að læra gegnum ígrundun og mat

Hugsanaferli sem byggja á mati og ígrundun eru nauðsynlegir þættir menntunar, bæði fyrir nemendur og kennara. Með því að innleiða þessa ferla í daglega kennslulæra kennarar og nemendur að móta þá og gera að sínum þannig að þeir verði aðferðafræði sem nýtist þeim alla ævi, byggð á vandlegri íhugun bæði á ferlum og niðurstöðum tiltekins verkefnis. 

Að læra gegnum ígrundun og mat krefst verkefna sem eru með skýr hæfniviðmið  og aðferðir sem ígrunda og meta námið og ferlið. Að læra gegnum ígrundun og mat skapar einnig margvísleg og fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur til ígrundunar, ekki aðeins um námsferli sitt, sem einstaklings og innan hóps, heldur einnig um samfélagslegar áskoranir. 

Þetta myndband sýnir hvað að læra gegnum ígrundun og mat þýðir og hvernig má innleiða það í kennslu.   

Markmið nemenda 

Nemendur munu læra að: 

  • Meta eigið námsferli og annarra með ólíkum aðferðum og/eða markvissum spurningum. 

  • Móta aðgerðir, bæta eigið námsferli. 

  • Meta ferlistengdar útkomur (svo sem hugsunarferli) óháð niðurstöðum innihalds. 

  • Taka þátt í matsferli. 

  • Gefa mati sjálfstætt gildi óháð áætlaðri útkomu tengt innihaldi 

Kannaðu stöðuna 

  • Hvenær myndir þú nota ígrundunaraðferð? 

  • Hvenær myndir þú nota matsaðferð? 

  • Hvernig hjálpa þessi vinnubrögð nemendum að meðtaka nám sitt? 

Ígrundandi spurningar 

  • Hvaða ígrundunararaðferðir eru hluti af mínum persónulegu vinnubrögðum? 

  • Hvaða, ef einhverjar, ígrundunar- og matsaðferðir nota ég nú þegar í kennslu? 

  • Hvað finnst mér um að nýta fleiri af þessum aðferðum í kennslu? 

Kennsluefni og fleira

Lesmateriale en meer

Af stað inn í kennslustofuna 

Einnu sini húgsaði ég, nú húgsa ég

Afurðamar

frekari upplýsingar um

blönduð námstækin?

bottom of page